HUGARÞEL MARÍU Á ÞRIÐJU HÆÐ

Finnið ykkur heima.

15.01.2008 00:30:21 / María Ósk

Hæ hæ og hó

Gabríel, Kristinn og Kristinn og Tinna.

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 00:35:20 / María Ósk

jól jól

Hér kem ég með smá , ég var að koma frá Bandaríkjunum bara, nýkominn, var að versla fyrir jólinn, þvílikt og önnur eins álagnin á hlutunum hér,,,, enda reif ég allt úr hillunum sem mér datt í hug að ég gæti notað ég var óð að versla í viku, litli svaf allan tímann ligur við og varð næstum því að kremju ofan í körfunni því að mamma hans hafði aldrei komist í annað eins. Ég keypti nánast allar jólagjafir úti og nánast allt sem vfimmburunum vantaði. Ég lét setja á mig neglur og get því varla pikkað á tölvuna og fór í dekur á einhverri snyrtistofu, nú það var allt svo ódýrt. Ég meina það það var allt ódýrt, allt, og góður matur og 35 stiga hiti, þvílíkur lúxus, enda leið litla bara vel þarna í Orlando.....en nú er að koma jól sem er svo gaman og krökkunum hlakkar til, þau bíða spennt að vita hvað  þau fá frá bandaríkjunum í pakkann sinn. Ég þarf að vera duglegri að setja myndir inn af fólkinu mínu því nú á ég digital myndavél, nú sem ég keypti úti...hehehe en annars þetta er gott í bili, allt gengur vel, vona að allt gangi vel hjá ykkur þarna úti,,,og GLEÐILEG JÓL OG MEGI GUÐ GEFA YKKUR GLEÐILEGA JÓLAHÁTIÐ,,,,,KOSS OG KNÚS FRÁ OKKUR SJÖ.......


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 22:30:05 / María Ósk

Heima

Hæ, sæl öll, takk fyrir kveðjurnar, hér gengur allt eins og í sögu, er hér heima við að græja fimm krakka, og nóg að gera. Hvernig hefur þatta verið hjá henni langömmu sem átti 17 krakka og enga  þvottavél, guð minn góður það hefur verið fjör. Kallinn alltaf í burtu og kellinginn heima að græja sláturgerð á haustinn, prjónandi, og að gera og græja í einhverju beygluðu húsi, dí ég þakka Guði fyrir að við höfum það betra núna. Bara smá fáranlegar hugrenningar. Hér er allavega nóg að gera og ég nýt þess í botn að skipta á bleyjum, baka, þvo og prjóna og hugsa vel um kallinn minn. Á föstudaginn fæ ég nýjan YARIS  úr kassanum til að keyra um á, það verður bara fjör á hól ýkt spennandi. Salný Sif sæta skvísann á afmæli í dag og er 13 ára og segi ég enn og aftur , Salný til hamingju með daginn sæta. Hér kemur ein sæt af litla manninum mínum. kveðjur Maria.

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 17:34:27 / María Ósk

Kristinn Wiium


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 09:22:30 / María Ósk

Vindurinn hvín.

Hæ, ákvað að setja nokkrar línur, hér sit ég með bumbuna út í loftið og er bara heima við að gera mest lítið, jú hugsa um börnin. Er ný hætt að vinna í þessari viku og á hreinlega erfitt með það, mér finnst svo gott að komast út og hitta fólk, en nú verð ég bara að slaka á,,,,.Kristinn kom með þessa hrikalega flottu Kitchen aid, hrærivél undir handleggnum, þannig að núna verður ennþá meira fjör að baka því að það heyrist varla í þessai vél, en gamla vélinn mín sem er kenwood örugglega sextug, er hrikalega hávær. Ég bakaði kryddbrauð í gær sem ég reyndar geri oft, og hjónabandssælu, sem krakkarnir borða gjörsamlega eins og þau fái borgað fyrir það. Uppskriftinn af kryddbrauðinu er einmitt í uppskriftir, hægra meginn. Gabríel á afmæli svo 9. okt, og ætla ég að vera með æfmæli fyrir hann eitthvað í kringum það, og baka eitthvað gott. En allavega skrifa inn leið og eitthvað er að frétta af kúlunni minni.

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 09:04:03 / María Ósk

Hæ sætu....

Hey hey, tvær vikur í að litla skinnið komi í heiminn, verða samt alveg örugglega fjórar...hehe. Var að koma úr vikuferð frá Tyrklandi sem var alveg svakalega gaman, það var alveg steikjandi hiti og ég lá mest í barnalauginni og á vindsæng með magakúluna út í loftið. Mér finnst kúlann mín ekki vera neitt svo stór, enda er ég eiturhress, og finn varla fyrir þessu þó ég sé kominn 38. vikur, mjög öðruvísi. En úti var ekki gert neitt nema bara notið þess að vera til, labbað um og setið og hlustað á músík á kvöldinn, farið tvisvar á markaði, svo bara hangið hlegið og spjallað. Ég held að þetta hafi verið ein sú skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í,,,,enda fór ég með indislegum manni sem á hjarta mitt, pungurinn, heheheh. En annars gengur allt voða vel, börnin mín öll hafa það gott í skólanum og Gabríel í sex ára bekk, skrítið að hann sé allt í einu bara kominn í skóla, og að verða stóri bróðir, hann er voða stoltur yfir því litli minn. Langar að láta peysusíðuna hjá Gestný systir fylgja, þessi duglega dama er gædd sköpunargáfu sem hún er aldeilis að fá útrás fyrir. Þú sæta systir mín.  http://myspace.com/gestnydesign

Gestný mín og Salný mín


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 14:35:48 / María Ósk

Skoðiði endilega, slidemyndi,,,niðri.

Hææææ maginn stækkar, hárið síkkar, húðinn dökknar, og neglurnar lengjast,,,,,bara grín. En hér er allt , gott, Kanínan nagar allt og símsnúrann er í sundur, litla skinnið, styttist í sumarfrí hjá mér og hef þegar farið í þrjár útilegur, sem er bara gaman. En það er langt síðan ég bloggaði hér síðast og langar að réyna að vera duglegri að setja línur og fl. hér inn. Krakkarnir fóru með mömmu til Danmörk í viku eða svo og það var víst bara gaman, og svo fara Siggi og Salný í sveit í viku og hálfan mánuð, aveg nóg að gera, sem er bara gott. En annars hef ég verið að stússast að laga Vagninn minn en það var farið ansi illa með hann, núna þegar ég lánaði hann, nefni enginn nöfn, en allavega var mjög leiðinlegt að sjá vagngreyjið í hálfgerðri rúst,:( Þetta kennir mér að vera bara ekki að lána hlutina mína. Annars hafið það sem best í sumar og kyssiði sólina og alla ungana ykkar, veriði góð við ykkur, lesiði, prjóniði, borðiði ávexti, súkkulaði, labbiði, kaupiði ykkur alltaf eitthvað fallegt í hverri viku, gleðjiði maka ykkur minnst einu sinni á dag og ætliðist aldrei til neins til baka, það er cool en nú stoppa ég hjartaknús......;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 09:35:03 / María Ósk

Barnið er með lítinn tilla,,,,,

Viti menn það er lítill strákur sem er í magakúlunni minni, þetta verður þá þriðji strákurinn og svo Tómas, já fjórir drengi.Kristinn var allavega mjög ánægður með að það væri prins, ég get þá bara stofnað fótboltalið,,,, átti samt engan veginn von á þessu, og ég sá bara kjólanna fjúka fyrir stuttbuxum og fótboltaskóm. Það verður bara gaman að fá einn strákbolta í viðbót, þeir eru jú indislegir. En allavega allt gott að frétta er kominn 20 vikur og allir hafa það gott. Kanínann dafnar vel og skoppar um allt og stækkar. Krakkarnir elska að hnoðast með hana eins og þau vilja og kanínann fílar það í botn. En annars bið ég Guð að fara fyrir ykkur jafnt sem og mér,,,,god bless you.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 14:06:10 / María Ósk

Stelpa eða strákur

Nú líður að sónar hjá minni, fer eftir 5 daga, það verður spennandi að vita, annars er ég ótrúlega viss að þetta sé lítil snúsa,,,,stelpa, en sjáum til.

Vika 20 :   5. maí 2007 til 11. maí 2007
  • Fóstrið mælist nú 16 sm og vegur tæplega 300 gr.
  • Nú er góður tími til að fara í sónar.  Þá er meðgöngulengdin metin, fylgjan er staðsett, legvatnsmagnið er metið og hugsanlegir fósturgallar greindir.
  • Nú er fóstrið orðið það stórt að auðveldara er að skoða einstök líffæri og líffærakerfi
  • Meðgöngulengd er reiknuð út frá stærð höfuðsins og lengd lærleggjarins
    Fjölburaþunganir greinast ef ekki hefur verið ómskoðað áður.
  • Staðsetning fylgju er skoðuð
  • Hingað til hefur lifur og milta fóstursins framleitt blóðfrumur.  Nú tekur beinmergurinn til starfa og smátt og smátt yfirtekur hann alveg þetta hlutverk.  Lifrin hættir framleiðslu blóðfruma nokkrum vikum fyrir fæðingu og miltað hættir framleiðslu í kringum 30. viku meðgöngunnar.
  • Í lok þessarar viku er meðgangan u.þ.b. hálfnuð
     



» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 14:03:22 / María Ósk

Ég skal gera allt sem þú væntir af mér....lalalala

Sæl, ég hef það ágjætt, og litla kúlann mín stækkar, börnin hafa það gott,  og nú eigum við kanínu sem heitir villimey. Ferð til ljubljana eftir tvo daga og ég ætla að njóta þess. Ýmilslegt að gerast gott og miður gott en svona er víst lífið og allt í kringum það. Megi þið njóta dagsins og allra stunda, god bless you.....
Vika 18 :   21. apríl 2007 til 27. apríl 2007
  • Fóstrið er nú um 14 sm á hæð (sethæð) en næstum 20 sm í fullri lengd frá hvirfli til ilja, ef það gæti rétt úr sér og vegur um 200 gr.
  • Nethimnan í auganu er nú orðin ljósnæm.
  • Fyrstu hægðir (meconium) safnast fyrir í þörmum og fóstrið pissar á hverri klukkustund.  Þvagið fer út í legvatnið og fóstrið drekkur það aftur. 
  • Flest úrgangsefni fóstursins fara um fylgjuna og hreinsast gegnum blóðrásarkefi móðurinnar.
  • Fitukirtlar húðarinna taka að framleiða fósturfitu.  Fósturfitan verndar húðina gegn því að verða þurr og sprungin og ef barnið fæðist fyrir tímann getur það verið þakið fósturfitu.
  • Nú fer að líða að því að frumbyrjur þ.e. konur sem ganga með sitt fyrsta barn fari að finna hreyfingar.  Þó geta liðið nokkrir dagar/vikur enn án þess að nokkuð sé óeðlilegt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 10:29:44 / María Ósk

Svona er maður orðinn stór.

Vika 17 :   13. apríl 2008 til 19. apríl 2008
  • Fóstrið hefur náð 12 sm lengd frá hvirfli að rófubeini og það vegur um 160 grömm.
  • Höfuðið er u.þ.b. 4 sm að þvermáli og fæturnir eru um 2 sm langir.
  • Það myndast fitulag á yfirborði fóstursins en fitulagið hefur hitajafnandi áhrif.
  • Nú fer að líða að því að fóstrið byrji að heyra.  Beinin í innra eyranu og taugahendar frá heilanum þróast þannig að fóstrið fer að heyra hjartslátt þinn og meltingarhljóð.
  • Nú byrja bein að harðna eða beingerast.  Með fyrstu beinum til að harðna eru viðbeinin og beinin í fótleggjunum
  • Umtalsverðar breytingar eiga sér stað á brjóstum hinnar verðandi móður.  Hormón undirbúa brjóstin fyrir mjólkurframleiðslu, blóðflæði til brjóstanna eykst mjólkurkirtlarnir stækka.  Þetta leiðir til þess að brjóstin stækka og bláæðakerfi þeirra verður oft sýnilegra.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 15:42:23 / María Ósk

Ætli maður sé ekki bomms

Hæ hef ekki bloggað lengi, hef haft það mjög gott um páskanna, var reyndar ekki með börnin mín, en þau höfðu það gott hjá pöbbum sínum, en annars borðaði ég sex páskaegg á sirka einni viku, ekki alveg í lagi, ég naut mín með Kristinni mínum og Tómasi og við sváfum í einni káós páskanæturnar, það vill svo til að inn í mallanum mínum er lítið kríli sem er bara ponsi pons, sirka 12 cm því er er kominn með sextán vikna smákríli. Vona bara að litla krílinu heilsist vel, það eru allavega allir voða ánægðir með þetta og spenntir, mér finnst litla kúlann mín ætla að stækka hratt þessa dagana, farið að sjást vel á mér, við sem ætluðum að fela þetta lengur, en svona er þetta. Jæja langar fljótllega að setja fleiri myndir og kyssi ykkur litla krýlakossa, Guð geymi ykkur

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 10:04:59 / María Ósk

Sæl

Hæ, og hó, nú blogga ég smá. Ég get ekki sagt að ég sé upp á mitt besta þessa dagana alls ekki, held bara að það sé einhver flensa að hrá mig svei mér þá. Er á leið út á miðvikudaginn í næstu viku, það verður rosa gaman héld ég, en þá fljúgum við mamma og fl. til New York og svo í 12 daga siglingu. En allavega vona að allir hafi að sem best.

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 11:37:52 / María Ósk

Er enn hér

Sæl veriði öll, ég hef ekki hætt að blogga , málið er að það var eitthvað vesen með lykilorð,, en komið í lag. Tíminn líður allt of hratt. Var í skólanum hjá börnunum í morgunn og þessi börn mín eru svo sem að standa sig ágætlega. Siggi er mjög duglegur í skólanum kallinn hefur verið að gera góða hluti blessaður, og Salný líka. En af mér er allt gott að frétta, maður getur ekki kvartað,, svo sannarlega, þó ýmislegt gangi á, þá allavega stendur maður öll fárviðri af sér, svo sem búinn að standa af sér alls konar storma,, bara lífið, lífið er víst með allri veðráttu eins og að búa bara á Íslandi. En maður kemur bara sterkari út eftir að veðri lægir. En ég er að fara út með mömmu í mars í  siglingu á karabískahafið í 2 vikur, maður reynir bara að njóta þess til þess ítrasta, verður gaman, maður tekur samt prjónanna með ef maður hefur ekkert að gera ,,,,segi svona. Svo í apríl fer ég út með vinnunni minni til Slóveníu, þá fer ég með vinnunni minni, og Kristin minn fer með, ætla að setja mynd af okkur skötuhjúum inn hér á eftir. En annars hafið það sem best og megi guð fara fyrir ykkur í lífinu, við getum þetta víst ekki ein......;) ÉG OG KRISTINN Í LONDON


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Litlu fólkið